Skólavefurinn.is kynnir

Stafsetningaræfingar
Ragnars Inga

Þessar æfingar eru fyrst og fremst hugsaðar til að æfa stafsetningu, einkum fyrir nemendur sem hafa átt í erfiðleikum með að rita rétt. Textarnir eru réttir og nemendur eiga að horfa á þá og slá þá síðan rétta inn í tölvuna. Ef einhverjum verður það á að slá inn rangan staf stoppar tölvan og rétti stafurinn blikkar á skjánum í stað þess sem ranglega var sleginn inn. Þetta gerir það að verkum að nemendur sjá aldrei rangt skrifað orð gegnum alla æfinguna.

Þannig er ætlunin að virkja sjónminnið til hins ýtrasta. Tölvan telur svo saman villurnar þannig að ef einhver göslast áfram og vandar sig ekki kemur það fram á skjánum hjá kennara. Þá er hægt að grípa inn í og mjög mikilvægt er að gera það fyrr en seinna.

Markmiðið er að nemandinn slái textann inn án þess að gera eina villu.
Gangi ykkur vel.

Til kennara

Veldu æfingu:

Til kennara - Bekkjarniðurstöður:

Ef kennari hefur bekkjaaðgang er hægt er að nálgast niðurstöður nemenda í sínum bekk/bekkjum með því að smella á hnappinn 'Bekkjaniðurstöður' hér að ofan.

Ef þig vantar bekkjaaðgang sendu þá tölvupóst á skolavefurinn@skolavefurinn.is til að óska eftir bekkjaaðgangi. Þetta er gjaldfrjáls viðbótarþjónusta fyrir skóla í áskrift.

Ef óskað er nánari upplýsinga eða útskýringa er hægt að hafa samband við Skólavefinn í síma 551 6400 eða senda tölvupóst á skolavefurinn@skolavefurinn.is