Skólavefurinn.is kynnir

Orðapikk

Hér geturðu þjálfað þig í að skrifa orð eftir upplestri á einfaldan og skilvirkan hátt.
Til kennara

Veldu staf, smelltu á „hefja æfingu“og hitt kemur af sjálfu sér. Gangi þér vel.

Hentar vel fyrir allar borð- og ferðatölvur, iPad, Android spjaldtölvur og flesta snjallsíma.

Veldu æfingu:

Stafirnir

A a

Afi og amma eiga a. 
Skoðum fleiri orð með a.

Á á

Á er ávallt ánægður. 
Reynum okkur við orð með stafnum á.

B b

Það eru mörg skemmtileg orð sem eiga b. 
Kíkjum á nokkur.

D d

D er áhugaverður stafur.
Skoðum nokkur orð með D.

E e

Nú prófum við nokkur orð með stafnum E sem englarnir eiga.

H h

H er sérstakur stafur. 
Hér færðu nokkur orð þar sem H kemur við sögu.

I i

I er innilegur stafur sem prýðir mörg orð. 
Hér færðu nokkur þeirra til að glíma við.

L l

L er laglegur stafur sem kemur víða við. 
Hér færðu nokkur orð með L.

N n

N er notalegur og nýtur stafur. 
Nú prófum við orð með N.

O o

O er orkumikill stafur.
Kynnum okkur nokkur o orð.

Ó ó

Ó er sannkallaður óskastafur. 
Skoðum nokkur orð.

R r

R er stafur rúsínunnar. 
Reynum okkur við nokkur r orð.

S s

S er sætur stafur.  Skrifum nokkur orð með honum.

T t

Það er töggur í stafnum t. 
Hér fáið þið nokkur orð með þeim trygga staf.

U u

U er stafur unganna. 
En hann á fleiri orð sem við skoðum hér.

Til kennara - Bekkjarniðurstöður:

Ef kennari hefur bekkjaaðgang er hægt er að nálgast niðurstöður nemenda í sínum bekk/bekkjum með því að smella á hnappinn 'Bekkjaniðurstöður' hér að ofan.

Ef þig vantar bekkjaaðgang sendu þá tölvupóst á skolavefurinn@skolavefurinn.is til að óska eftir bekkjaaðgangi. Þetta er gjaldfrjáls viðbótarþjónusta fyrir skóla í áskrift.

Ef óskað er nánari upplýsinga eða útskýringa er hægt að hafa samband við Skólavefinn í síma 551 6400 eða senda tölvupóst á skolavefurinn@skolavefurinn.is