Nú bjóðum við upp glænýtt heildstættefni um fyrri heimsstyrjöldina hvort heldur til almennrar sögukennslu eða tilað efla lesskilning. Fyrri heimsstyrjöldin var ásamt meðsíðari heimstyrjöldinni sá atburður sem hvað mest mótaði tuttugustu öldina og þannveruleika sem við búum við í dag. Til að skilja betur samtímann er nauðsynlegtað kunna á henni skil.
Efnið er fyrst og fremst hugsað semsöguefni fyrir efstu bekki grunnskólans en mætti hæglega nota sem þjálfunarefnií lesskilningi á á öðrum stigum ef út í það er farið. Þá hentar efnið einnig framhaldsskólum.
Efnið skiptist í fimm bækur og másegja að fyrstu tvær bækurnar séu heildstætt efni þar sem farið er yfiraðdraganda styrjaldarinnar, gang hennar og afleiðingar. Hinar þrjár bækurnareru ítarefni fyrir þá sem vilja fræðast enn frekar um meginmálið.
Efnið er hægt að prenta út en svo erefnið einnig aðgengilegt á góðri vefsíðu þar sem hægt er að hlusta á þaðupplesið og glíma við gagnvirkar fjölvalsspurningar. Þá munum við innan skamms bjóða upp ámyndbandsviðtöl við einstaklinga sem upplifðu átökin á eigin skinni.
Hér rekjum við aðdraganda þessa mikla hildarleiks nokkuð ítarlega en það hefur verið skoðun margra að í raun hafi ekki verið nein sérstök ástæða eða nauðsyn fyrir þessu stríði þar sem a.m.k. 10 milljónir hermanna létu lífið og fleiri sátu eftir með varanlega áverka. Þá er ekki talað um afleiðingarnar sem þetta hafði á almenning, milljónir manna sem höfðu ekkert til saka unnið en þurftu að lifa við mikinn skort og fátækt í kjölfarið.
Lestrarvænt
Upplestur / Hljóðbók
Gagnvirkar æfingar
Spurningar / Verkefni
Styrjöldin hafði miklar afleiðingar á milljónir manna og fólk fylgdist eins vel með atburðarásinni eins og það gat. Lengi vel vissu menn ekki hvernig stríðinu myndi lykta og hvaða afleiðingar það hefði í för með sér. Útkoman var svo algjörlega ný heimsmynd þar sem rótgróin ríki hurfu með öllu og ný urðu til.
Lestrarvænt
Upplestur / Hljóðbók
Gagnvirkar æfingar
Spurningar / Verkefni
Hér bjóðum við upp á valdar greinar í þeim tilgangi að skýra ákveðna þætti betur fyrir nemendum og gefa betri innsýn í einstök atriði s. s. skotgrafahernað auk þess sem sumar greinarnar fjalla um ákveðna hliðaratburði sem skiptu miklu máli fyrir atbuðarásina eins byltingarnar í Rússlandi 1917.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um einstaka bardaga sem ekki var pláss fyrir í meginmálinu og þjónaði kannski heldur ekki markmiðum þar. Allir þessir bardagar höfðu í raun úrslitaáhrif á gang styrjaldarinnar.
Eins og með öll átök standa persónur þar að baki: persónur sem tóku ákvarðanir sem vörðuðu fjölda fólks. Hér skoðum við stakar persónur og munum bæta fleiri einstaklingum við smátt og smátt.
Til að fá lausnir við verkefnum, sendu okkur tölvupóst á boksala@skolavefurinn.is með beiðni um lausnir.
Ef óskað er nánari upplýsinga eða útskýringa er hægt að hafa samband við Skólavefinn í síma 551 6400 eða senda tölvupóst á skolavefurinn@skolavefurinn.is