format headings, paragraphs,
blockquotes, images, and video
Hér getið þið nálgast allar helstu grunnreglur í enskri málfræði og yfir 45 gagnvirkar æfingar til að hnykkja á reglunum. Einnig hægt að prenta út sem bók upp á 50 bls.
Heimurinn, eðli hans og uppbygging hefur löngum valdið mönnum heilabrotum. Í aldanna rás hefur orðið til hópur manna sem við í daglegu tali köllum heimspekinga, sem hafa það að markmiði að finna röklegt samhengi tilverunnar, þannig að við getum skilið hana betur og áttað okkur á tilgangi lífsins. Á þessari síðu bjóðum við upp á kynningar á helstu heimspekingum sögunnar, kenningum þeirra og niðurstöðum sem þeir komust að. Efnið er boðið í þægilegum og aðgengilegum einingum sem hentar bæði einstaklingum og kennurum. Efnið er unnið af Dr. Geir Sigurðssyni heimspekingi. Auk þess sem hægt er að nálgast heimspekiefni okkar í aðgengilegum vefbúningi bjóðum við upp á 6 sérútbúin kennsluhefti til útprentunar.
Lesklikk er skemmtileg og áhrifarík leið til að þjálfa lesskilning. Textarnir eru ætlaðir nemendum á mótum miðstigs og unglingastigs. Nemandinn þarf ekki að „pikka“ nein svör, heldur einungis að smella á svarið í textanum sjálfum.
Jafnframt því að vera til þjálfunar lesskilnings er þeim ætlað að fræða nemendur um ýmis samfélagsleg, söguleg og bókmenntaleg efni. Ætlunin er síðan að bæta fleiri textum við, bæði léttari og meira krefjandi, þannig að efnið hæfi að lokum öllu grunnskólastiginu.
Yfir 60 vandaðir textar með góðum verkefnum. Bæði hægt að prenta efnið út eða glíma við það á vef í öllum tölvum og símum. Frábær leið til að þjálfa lesskilning og orðaforða.
Hér getið nálgast lengri texta s.s. skáldsögur sem sniðugt er að nota til að þjálfa nemendur í að lesa á ensku og efla lesskilninginn. Sögurnar eru allar upplesnar með góðum verkefnum.
Hér getið þið nálgast stakar gagnvirkar æfingar af ýmsu tagi. Eru æfingarnar vel flokkaðar þannig að auðvelt er að grípa til þeirra þegar verið er að hnykkja á ákveðnum atriðum.
Hér getið þið nálgast sögur úr ýmsum áttum til að þjálfa nemendur í ensku. Góð verkefni fylgja öllum sögunum. Allar sögurnar eru í vefbúningi með gagnvirkum æfingum og upplesnar.
Við bjóðum upp á ýmsar vinnubækur í ensku, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Er bæði um að ræða almennar vinnubækur og sértækar s.s. krossgátur.