Skólavefurinn.is
----

Bók 1
Bók 2
Bók 3

Herkúles
og þrautirnar tólf
LESTRARVINNUBÓK

Lesum söguna er ný ritröð sem við á Skólavefnum erum að fara af stað með. Þar einblínum við á mannkynssöguna en sjónarhornið er nokkuð frábrugðið því sem nemendur eiga að venjast. Í þessari fyrstu bók er valið efni úr sögu fornaldar kynnt í stuttum en hnitmiðuðum einingum án þess að kafað sé mjög djúpt.

Má segja að hér sé um að ræða nokkurs konar samantekt til að gefa nemendum yfirlit yfir farinn veg. Út frá þessu efni geta nemendur svo kynnt sér betur þau atriði sem vekja sérstakan áhuga þeirra.  

Tilgangur okkar með þessu efni er að nemendur fái betri innsýn inn í tímaröð atburða í heimssögunni sem og að landafræði sögunnar verði þeim ljósari. Í því sambandi bjóðum við upp á valin kort á vefsíðunni sem fylgir bókunum.

Í þessari fyrstu bók af þremur sem taka fyrir atburði frá því fyrir Krists burð byrjum við á því að kynna fyrstu mennina til sögunnar. Þá skoðum við þá þróun sem átti sér stað til að stærri samfélög gætu þrifist. Síðan er komið að fyrstu stóru samfélögunum sem við þekkjum, eins og í Mesópótamíu, Egyptalandi og Indusdalnum. Kunnar persónur frá þessum tíma eru einnig kynntar til sögunnar: Nefertítí, Hammúrabí, Hatshepsut, Ramses II. og fleiri.

Gagnlegar spurningar fylgja hverjum kafla og þá er á vefnum hægt að nálgast fjölvalsspurningar sem bæði er hægt að prenta út eða leysa gagnvirkt á vefnum. Þar er einnig hægt að hlusta á alla kaflana upplesna.

Á vefsíðunni er einnig boðið upp á ítarefni með hverjum kafla fyrir kennara og þar er einnig hægt að sækja lausnir við öllum verkefnum. 

LESTRARVINNUBÓK
Lesum söguna
Bók 1

Í þessari fyrstu bók af þremur sem taka fyrir atburði frá því fyrir Krists burð byrjum við á því að kynna fyrstu mennina til sögunnar. Þá skoðum við þá þróun sem átti sér stað til að stærri samfélög gætu þrifist. Síðan er komið að fyrstu stóru samfélögunum sem við þekkjum, eins og í Mesópótamíu, Egyptalandi og Indusdalnum.

Kunnar persónur frá þessum tíma eru einnig kynntar til sögunnar: Nefertítí, Hammúrabí, Hatshepsut, Ramses II. og fleiri.

Efnisyfirlit

1. Fyrstu mennirnir
2. Þróun mannsandans
3. Fyrstu samfélögin
4. Mesópótamía og Súmerar
5. Egyptaland hið forna
6. Píramídinn mikli í Giza
7. Fornegypsk trúarbrögð
8. Indusdalsmenningin
9. Akkadíumenn
10. Gilgameskviða
11. Hammúrabí og Babýlónska heimsveldið
12. Mínóamenningin á Krít
13. Mýkenumenningin
14. Vedabækurnar og upphaf hindúatrúar
15. Hatshepsut
16. Hittítar
17. Akhenaten
18. Nefertítí
19. Þróun mannsandans 2
20. Ramses annar

LESTRARVINNUBÓK
Lesum söguna
Bók 2

Fyrir stuttu buðum við upp á fyrstu bókina í nýrri ritröð sem við köllum einfadlega Lesum söguna. Þar einblíndum við á mannkynssöguna sem átti sér stað fyrir fæðingu Krists. Efnið er framsett í stuttum en hnitmiðuðum og aðgengilegum einingum. Má segja að um sé að ræða nokkurs konar samantekt til að gefa nemendum yfirlit yfir farinn veg. Út frá þessu efni geta nemendur svo kynnt sér betur þau atriði sem vekja sérstakan áhuga þeirra.  

Nú er komið að bók númer tvö í ritröðinni og þar erum við einnig að taka fyrir söguna fyrir fæðingu Krists.

Tilgangur okkar með þessu efni er að nemendur fái betri innsýn inn í tímaröð atburða í heimssögunni sem og að landafræði sögunnar verði þeim ljósari. Í því sambandi bjóðum við upp á valin kort á vefsíðunni sem fylgir.

Í þessari bók númer tvö af þremur sem taka fyrir atburði sem eiga sér stað fyrir Krists burð byrjum við á því að skoða Trójustríðið sem mun hafa átt sér stað í kringum 1200 f.Kr. Þaðan höldum við ferðalaginu áfram og komum við í Kína, Mið-Ameríku, Mesópótamíu, Grikklandi og fleiri stöðum.

Efnisyfirlit

1. Trójustríðið
2. Akkillesarhæll
3. Shang-tímabilið í Kína
4. Zhou-ættin við völd í Kína
5. Gyðingdómur
6. Fönikíumenn
7. Gullöld Ísraels
8. Assýríska heimsveldið
9. Kúsh-konungsríkið
10. Olmekar
11. Hómer og kviður hans
12. Saraþústra
13. Kínamúrinn
14. Búddismi
15. Þales
16. Hengigarðarnir í Babýlon
17. Lao Tse
18. Anaxímenes frá Míletos
19. Pýþagóras
20. Artemisarhofið

LESTRARVINNUBÓK
Lesum söguna
Bók 3

Lesum söguna er ritröð úr smiðju Skólavefsins þar sem sagan er skoðuð á nýstárlegan hátt því að sjónarhornið er nokkuð frábrugðið því sem nemendur eiga að venjast. Tiltekið efni úr sögu fornaldar er kynnt, efni sem við teljum að nemendur hafi gott af að þekkja án þess þó að farið sé náið út í hvert atriði fyrir sig að svo stöddu.

Má segja að hér sé um að ræða nokkurs konar samantekt til að gefa nemendum yfirlit yfir farinn veg. Út frá þessu efni geta nemendur svo kynnt sér betur þau atriði sem vekja sérstakan áhuga þeirra.  

Þá er tilgangurinn að nemendur fái innsýn í tímaröð atburða í heimssögunni sem og að landafræði sögunnar verði þeim ljósari.  

Í þessari þriðju bók af þremur sem taka fyrir atburði frá því fyrir Krists burð hefjum við söguna á Kýrosi og Persum. Við komum við í Grikklandi, Egyptalandi og víðar, auk þess sem við kynnumst Rósettusteininum og einstaklingum eins og Kleópötru, Qin Shi Huang og Arkímedesi, svo dæmi séu tekin.

Auk þess að henta vel sem námsefni í samfélagsfræði og sögu, þá er þetta efni tilvalið til markvissrar lestrarþjálfunar. Það er ekki verra að bæta við sig þekkingu samfara því að þjálfa sig í lestri.

Efnið er bæði hægt að prenta út og skoða á vefsíðu. Á vefsíðunni má hlusta á það upplesið, svara gagnvirkum spurningum og skoða tímalínur.

Það er von okkar að efnið falli í góðan jarðveg og megi verða til þess að vekja áhuga nemenda á löngu liðinni tíð og mikilvægum kennileitum í sögu mannkyns.

Efnisyfirlit

1. Kýros og Persar
2. Grikkland hið forna
3. Amasónur
4. Konfúsíus
5. Orrustan við Laugaskarð
6. Þrætuepli
7. Seifsstyttan í Ólympíu
8. Alexander mikli
9. Grafhýsið í Halikarnassos
10. Hellenismi
11. Arkímedes
12. Evklíð
13. Risinn á Ródos
14. Vitinn í Alexandríu
15. Maurya-veldið
16. Qin Shi Huang
17. Rósettusteinninn
18. Kleópatra
19. Rómverska heimsveldið
20. Han-ættin við völd í Kína

Lausnir:

Senda beiðni á skolavefurinn@skolavefurinn.is.