

Nú bjóðum við upp á söguna Herkúles og þrautirnar tólf í nýrri endurgerð þar sem við höfum fært textann til nútímans og betrumbætt öll verkefni.
Hentar miðstigi og upp úr
Þessir þættir um þrautir Herkúlesar eru ætlaðir nemendum á miðstigi og allt til framhaldsskóla. Ef þeir eru ekki orðnir vel læsir er sjálfsagt að lesa fyrir þá þannig að þeir geti bæði hlustað og fylgst með á bók eða skjá. Það getur reyndar einnig átt vel við þótt komið sé vel inn á miðstig eða efsta stig grunnskólans.
Það ætti að vera þægilegt að efna til umræðu um þessar sögur því það er nú einu sinni þannig að undir yfirborði goðsagna leynist svo margt sem snertir líf og tilveru alls fólks.
Efnið fellur undir það sem við köllum lestrarvinnubók en slíkar bækur hafa notið mikilla vinsælda á vefnum okkar undanfarið. Bókin skiptist í 14 kafla og fylgja góð verkefni hverjum kafla.
Gagnlegar spurningar fylgja hverjum kafla og þá er á vefnum hægt að nálgast fjölvalsspurningar sem bæði er hægt að prenta út eða leysa gagnvirkt á vefnum. Þar er einnig hægt að hlusta á alla kaflana upplesna.
Á vefsíðunni er einnig boðið upp á ítarefni með hverjum kafla fyrir kennara og þar er einnig hægt að sækja lausnir við öllum verkefnum.
Sagan af Herkúlesi er goðsaga ættuð frá Grikklandi eða Hellas. Þar segir frá því hvernig þessi mikli kappi varð að leysa 12 þrautir til að bæta fyrir ódæði sem hann hafði unnið. Sagan er hluti af goðsagnaheimi Hellena, en þeirra blómaskeið stóð frá um 800 til 400 f.Kr. Hellenar trúðu á marga guði sem mynduðu eins konar fjölskyldu og tóku gjarnan þátt í lífi mannanna og ákváðu örlög þeirra. Um uppruna þeirra trúarbragða er margt óljóst, en sagnfræðingurinn Herodotos sem uppi var á 5. öld f.Kr. segir á einum stað að Hómer og Hesiodos hafi búið til kynslóð goðanna handa Grikkjum og kveðið á um ætt þeirra og eðli. Mun Hómer hafa verið uppi í kringum 800 f.Kr.

Nú bjóðum við upp á söguna Herkúles og þrautirnar tólf í nýrri endurgerð þar sem við höfum fært textann til nútímans og betrumbætt öll verkefni.
Um söguna
Sagan af Herkúlesi er goðsaga ættuð frá Grikklandi eða Hellas. Þar segir frá því hvernig þessi mikli kappi varð að leysa 12 þrautir til að bæta fyrir ódæði sem hann hafði unnið. Sagan er hluti af goðsagnaheimi Hellena, en þeirra blómaskeið stóð frá um 800 til 400 f.Kr. Hellenar trúðu á marga guði sem mynduðu eins konar fjölskyldu og tóku gjarnan þátt í lífi mannanna og ákváðu örlög þeirra. Um uppruna þeirra trúarbragða er margt óljóst, en sagnfræðingurinn Herodotos sem uppi var á 5. öld f.Kr. segir á einum stað að Hómer og Hesiodos hafi búið til kynslóð goðanna handa Grikkjum og kveðið á um ætt þeirra og eðli. Mun Hómer hafa verið uppi í kringum 800 f.Kr.
INNGANGUR
1. ÆSKA HERKÚLESAR
2. FYRSTA ÞRAUT: NEMEULJÓNIÐ
3. ÖNNUR ÞRAUT: ORMSKRÍMSLIÐ Í LERNUVATNI
4. ÞRIÐJA ÞRAUT: KERYNÍU-HJÖRTURINN
5. FJÓRÐA ÞRAUT: VILLIGÖLTURINN ÓGURLEGI
6. FIMMTA ÞRAUT: FJÓSMOKSTUR HJÁ ÁGÍASI KONUNGI
7. SJÖTTA ÞRAUT: SYMFALSFUGLARNIR
8. SJÖUNDA ÞRAUT: KRÍTEYJARNAUTIÐ
9. ÁTTUNDA ÞRAUT: HRYSSUR DÍÓMEDESAR
10. NÍUNDA ÞRAUT: BELTI SKJALDMEYJANNA
11. TÍUNDA ÞRAUT: NAUTAHJARÐIR GERÝÓNESAR
12. ELLEFTA ÞRAUT: GULLEPLI VESTURDÍSA
13. TÓLFTA ÞRAUT: KERBEROS SÓTTUR TIL UNDIRHEIMA
14. DAUÐI HERKÚLESAR
Senda beiðni á skolavefurinn@skolavefurinn.is.
Senda beiðni á skolavefurinn@skolavefurinn.is.