Við bjóðum upp á fjórar nýjar og stórskemmtilegar verkefna- og þrautabækur fyrir yngstu nemendur grunnskólans og elstu nemendur í leikskólans.
Efnið er úr smiðju Mjallar Gunnarsdóttur og hvetjum við alla að kynna sér þetta efni vel. Verkefnin sameina það að reyna á athyglisgáfu nemenda og að vera skemmtileg en það er jú forsenda þess að jákvætt nám eigi sér stað.
Hér eru um 4 bækur að ræða sem hver um sig hefur að geyma tíu verkeni og því samtals um 40 verkefni að ræða.
Rétt er að vekja athygli á því að þó að verkefnin séu í lit hjá okkur virka þau allt eins vel í svarthvítu og því auðvelt að prenta þau út.
Góða skemmtun!