Skemmtilegar gagnvirkar æfingar
Flakkaðu um heiminn og lærðu hvaða HÖFUÐBORG er í hverju landi.
Skemmtilegar gagnvirkar æfingar
Skemmtilegar gagnvirkar æfingar
Skemmtilegar gagnvirkar æfingar
Flakkaðu um Ísland og lærðu um ýmsa staði landsins.
Hér er boðið upp á þrjár glænýjar kennslubækur í landafræði sem eru hugsaðar fyrir 5., 6. og 7. bekk en má þó einnig kenna á öðrum stigum allt eftir efnum og ástæðum. Bækurnar sem eru eftir Ingibjörgu Sól Ingólfsdóttur og myndskreyttar af Mjöll Sigurðardóttur taka í einu og öllu mið af Aðalnámskrá grunnskóla í greininni auk þess sem reynt hefur verið að gera efnið bæði aðlaðandi og áhugavert fyrir nemendur. Góð verkefni fylgja hverri bók.
Vönduð vefsíða fylgir efninu þar sem hægt er að nálgast bækurnar sem flettibækur og í pdf útgáfu. Á vefsíðunni geta kennarar einnig nálgast skemmtilegar gagnvirkar æfingar þar sem nemendur geta þjálfaðsig í að þekkja lönd, höfuðborgir og fána.
Í þessu efni er landafræðin skoðuð í ljósi nýjustu áherslna og upplýsinga. Hér er á ferðinni efni sem talar inn í samtímann og það sem brennur á fólki í dag.
Skólavefurinn.is
Í þessari bók sem er 46 blaðsíður á lengd og skiptist í 13 kafla er farið yfir kort og hvernig á að lesa úr þeim, heimsálfurnar og fleira.
Verkefnin sem fylgja eru mjög fjölbreytt, áhugaverð og skemmtileg.
Til að fá lausnir við Landafræði - bók 1, sendu okkur tölvupóst á boksala@skolavefurinn.is með beiðni um lausnir.
Í þessari bók sem er 49 blaðsíður á lengd og skiptistí 16 kafla er farið yfir kenningar um hvernig heimurinn varð til, samsetningu jarðarinnar, flekakenninguna, jarðskjálfta og eldvirkni, háhita- og lághitasvæði og fleira.
Fjölbreytt og skemmtileg verkefni fylgja hverjum kafla.
Til að fá lausnir við Landafræði - bók 2, sendu okkur tölvupóst á boksala@skolavefurinn.is með beiðni um lausnir.
Í þessari bók sem er 52 blaðsíður á lengd og skiptistí 15 kafla er hugtakið loftslag útskýrt og hvað hefur áhrif á það, gang himintunglanna, möndulhalla jarðar, árstíðir, loftslagsbelti, hæð yfir sjávarmáli, hafstrauma, hæðir, lægðir og loftþrýsting, lofthjúpinn, hlýnun jarðar og margt fleira.
Fjölbreytt og skemmtileg verkefnifylgja hverjum kafla.
Til að fá lausnir við Landafræði - bók 3, sendu okkur tölvupóst á boksala@skolavefurinn.is með beiðni um lausnir.
Til að fá lausnir við Landafræði - bók 1, sendu okkur tölvupóst á boksala@skolavefurinn.is með beiðni um lausnir.