Skólavefurinn kynnir

Gaman að reikna

Það er gaman að reikna er ritröð í stærðfræði eftir Björk Gunnarsdóttur kennara.

Bækurnar henta vel frá 2. og upp í 4. bekk.  Í bókunum er áherslan fyrst og fremst á grunnþættina fjóra; samlagningu, frádrátt,  margföldun og deilingu.  Þá er inn á milli að finna alls kyns leik með tölur, þrautir, gátur, orðadæmi og ýmislegt fleira.  Hér getið náð í skemmtilegar stærðfræðibækur sem börnin hafa gaman af að glíma við.

Yngsta stig

Samlagning - Bók 1.

Tölur upp í hundrað, orðaleikir, þrautir, gátur, mælingar, línurit, form, stafarugl, oddatölur, raðtölur, orðadæmi og fl.

Yngsta stig

Frádráttur - Bók 2.

Tölur upp í hundrað, orðaleikir, þrautir, gátur, mælingar, línurit, form, stafarugl, oddatölur, raðtölur, orðadæmi og fl.

Yngsta stig

Samlagning og frádráttur - Bók 3.

Tölur upp í hundrað, orðaleikir, þrautir, gátur,  form, stafarugl, orðadæmi og fl.

Yngsta stig

Margföldun - Bók 4.

Unnið með margföldun upp í tíu sinnum töfluna. Þá er eins og í fyrri bókum mikið um þrautir, gátur og alls kyns leiki með tölur.

Yngsta stig

Samlagning, frádráttur, margföldun og orðadæmi - Bók 5.

Unnið með blöndu af samlagningu, frádrátt, margföldun og hnykkt á öllu með orðadæmum.  Þá er mikið af alls kyns gátum og þrautum.

Yngsta stig

Deiling og orðadæmi - Bók 6.

Eins og segir í titlinum er áherslan hér fyrst og fremst á deilingu og orðadæmi, en svo er mikið af alls kyns þrautum og öðru skemmtiefni.