Bóksala - Haust 2023

ALVÖRU ÚTSALA Á SKÓLAVEFNUM

Við á Skólavefnum bjóðum nú upp á valdar bækur á sérstöku útsöluverði vegna flutnings lagers og endurskipulagningar. Og þá erum við að tala um alvöru útsölu, þ.e. meðan birgðir endast. Það borgar sig því að vera fljót að panta því hér er um takmarkað upplag að ræða.

Kynningarskjal (pdf)

Tilboðið gildir út maí 2021.
Ath! Skólar borga sendingarkostnað.

Hvernig panta ég bækur ?

Til þess að panta bækur frá Skólavefnum skaltu sækja Excel skjalið (sjá link) og fylla út skjalið. Sendu svo skjalið með tölvupósti á boksala@skolavefurinn.is.  Í subject-línuna skal setja "Pöntun frá (þinn skóli)"  og láta svo fylgja með pöntunarlistinn (excel skjalið).

Pöntunarlisti (excel skjal)
smelltu á linkinn
eða
hægri smellið og veljið "save".

Hér fyrir ofan er pöntunarlisti á Excel formi sem þið getið sótt, fyllt út og sent okkur sem viðhengi. Afhendingartími er svo eftir samkomulagi og viðtakandi greiðir sendingarkostnað. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þið hafið einhverjar spurningar, við tökum öllum fyrirspurnum vel.

1990
kr.
Bardaginn á Örlygsstöðum

Bardaginn á Örlygsstöðum

1990

kr.

Bókin Bardaginn á Örlygsstöðum er kjörið lesefni fyrir miðstig grunnskóla og allt upp í starfs- og fornámsbrautir framhaldsskóla. Uppsetning er lesvæn og útlit texta miðar við að bókin sé notuð til lestrarþjálfunar. Þetta er spennandi saga sem gerist á spennandi tímum í Íslandssögunni, skáldsaga unnin upp úr Sturlungu. Bardaginn á Örlygsstöðum er ágæt kynning á þessum voðaatburði Sturlungaaldar og hvetur til umræðu um fornrit okkar Íslendinga. Góð sem ítarefni í sögukennslu í grunnskólum.

Góð vinnubók fylgir sögunni bæði með og án lína.  Hægt er að prenta báðar útgáfur af vefnum eða panta þær hjá okkur.  Verið er að vinna að lausnum.

Hjá okkur fáið þið bókina á 1990 krónur.  (5. – 10. bekkur)

Smelltu hér fyrir vinnubókina sem fylgir

990
kr.
Bits and Pieces in English Spelling

Bits and Pieces in English Spelling

990

kr.

Bits and Pieces in English Spelling er mjög hentug og gagnleg bók í enskri ritun og stafsetningu. Í stað þess að fara yfir hvert einasta málfræði- og stafsetningaratriði eru hér teknar fyrir þær reglur sem helst vilja vefjast fyrir íslenskum nemendum.

Bókinni er skipt upp í kennslustundir en þar notum við orðið „stundir“ nokkuð frjálslega. Mætti jafnvel frekar tala um kennsluatriði eða einingar. Reynum við að hafa hverja stund stutta þannig að einungis eitt atriði er tekið fyrir í hverri kennslustund og mælumst í leiðinni til þess að stutt sé milli stunda.

Þetta er afar markviss þjálfun í enskri ritun og stafsetningu og er sérstaklega miðuð að þeim þáttum sem helst eru íslenskum nemendum erfiðir. Uppsetningin og efnistökin gera þetta að frábærri nýjung í enskukennslu á Íslandi. Er bókin 50 blaðsíður að lengd og hefur að geyma 38 stundir.

Bókin hentar vel fyrir 8.-10. bekk.

Lausnahefti má nálgast hér.

990
kr.
Borgarmúsi og Sveitamúsi

Borgarmúsi og Sveitamúsi

990

kr.

Bókin Borgarmúsi og Sveitamúsi telur 44 blaðsíður og skiptist í 6 stutta og þægilega leskafla, ásamt verkefnum sem henta vel fyrir 2.-3. bekk. Verkefnin eru fjölbreytt og skemmtileg og taka fyrir þætti eins og nafnorð, lýsingarorð, samheiti, lesskilning, tímaröð atburða, krossgátur og fleira.

Hefur þeirri reglu okkar verið fylgt að vera með erfið og létt verkefni og/eða viðfangsefni á víxl, enda mikilvægt að sem flestir nemendur finni einhverja fótfestu í efninu án hjálpar.

Efnið er unnið upp úr námsefni frá breska útgefandanum Domino Books en um viðbætur og staðfæringar sáu Páll Guðbrandsson og Ingólfur B. Kristjánsson. Sagan er skemmtilega myndskreytt, en textinn er með leturstærð 16. 

590
kr.
Bók 1 - Veskið

Bók 1 - Veskið

590

kr.

Sagan Veskið fjallar um vinina Hönnu og Palla sem finna veski á förnum vegi sem er stútfullt af peningum. Nú er að sjá hvernig þau leysa úr því.

Lesbókin er 42 blaðsíður.

Vinnubók upp á 24 blaðsíður er hægt að sækja hér

Stök bók kostar 590 krónur.

Pakki með 7 titlum (Veskið, Útilegan, Sprengjan, Sundferðin, Skólaferðalag, Týndi bíllinn og Sinubruni) kostar einungis 1490 krónur sem er 213 krónur af hverri bók.

590
kr.
Bók 2 - Útilegan

Bók 2 - Útilegan

590

kr.

Útilegan segir frá systkinunum Lísu og Val sem fara í útilegu til Laugarvatns með foreldrum sínum og lenda í ævintýrum þar.

Lesbókin er 30 blaðsíður.

Vinnubók upp á 14 blaðsíður er hægt að sækja hér

Stök bók kostar 590 krónur.

Pakki með 7 titlum (Veskið, Útilegan, Sprengjan, Sundferðin, Skólaferðalag, Týndi bíllinn og Sinubruni) kostar einungis 1490 krónur sem er 213 krónur af hverri bók.

590
kr.
Bók 3 - Sprengjan

Bók 3 - Sprengjan

590

kr.

Í Sprengjunni segir frá drengjunum Kidda og Nonna sem ákveða að kaupa sér sprengjur af því að áramótin eru að nálgast.

Lesbókin er 33 blaðsíður.

Vinnubók upp á 24 blaðsíður er hægt að sækja hér.

Stök bók kostar 590 krónur.

Pakki með 7 titlum (Veskið, Útilegan, Sprengjan, Sundferðin, Skólaferðalag, Týndi bíllinn og Sinubruni) kostar einungis 1490 krónur sem er 213 krónur af hverri bók.

590
kr.
Bók 4 - Sundferðin

Bók 4 - Sundferðin

590

kr.

Sundferðin segir frá því þegar Valur fer með Kötu frænku sinni frá Selfossi í sund. Þar rekast þau á stríðnispúkann Níels.

Lesbókin er 20 blaðsíður.

Vinnubók upp á 24 blaðsíður er hægt að sækja hér.

Stök bók kostar 590 krónur.

Pakki með 7 titlum (Veskið, Útilegan, Sprengjan, Sundferðin, Skólaferðalag, Týndi bíllinn og Sinubruni) kostar einungis 1490 krónur sem er 213 krónur af hverri bók.

590
kr.
Bók 5 - Skólaferðalag

Bók 5 - Skólaferðalag

590

kr.

Skólaferðalag er ein af þremur bókum um þá Gunna og Sigga. Hinar bækurnar nefnast Ásta er týnd og Á vídeóleigunni.

Lesbókin er 31 blaðsíður.

Vinnubók upp á 24 blaðsíður er hægt að sækja hér.

Stök bók kostar 590 krónur.

Pakki með 7 titlum (Veskið, Útilegan, Sprengjan, Sundferðin, Skólaferðalag, Týndi bíllinn og Sinubruni) kostar einungis 1490 krónur sem er 213 krónur af hverri bók.

590
kr.
Bók 6 - Týndi bíllinn

Bók 6 - Týndi bíllinn

590

kr.

Í sögunni Týndi bíllinn verður mamma Palla fyrir því að bíllinn hennar hverfur. Var honum stolið eða getur verið einhver önnur skýring?

Lesbókin er 26 blaðsíður.

Vinnubók upp á 24 blaðsíður er hægt að sækja hér.

Stök bók kostar 590 krónur.

Pakki með 7 titlum (Veskið, Útilegan, Sprengjan, Sundferðin, Skólaferðalag, Týndi bíllinn og Sinubruni) kostar einungis 1490 krónur sem er 213 krónur af hverri bók.

590
kr.
Bók 7 - Sinubruni

Bók 7 - Sinubruni

590

kr.

Í sögunni Sinubruni eru þau Palli og Hanna að ganga upp í Elliðaárdal þegar þau koma þar að þar sem kveikt hefur verið í sinu.

Lesbókin er 28 blaðsíður.

Vinnubók upp á 24 blaðsíður er hægt að sækja hér.

Stök bók kostar 590 krónur.

Pakki með 7 titlum (Veskið, Útilegan, Sprengjan, Sundferðin, Skólaferðalag, Týndi bíllinn og Sinubruni) kostar einungis 1490 krónur sem er 213 krónur af hverri bók.

1590
kr.
Dagbók vesturfara I

Dagbók vesturfara I

1590

kr.

Jóhann Magnús Bjarnason flutti ungur að árum til Vesturheims og var ástsæll kennari og rithöfundur. Hér er komið fyrsta bindið af dagbókum hans sem hafa aldrei áður komið út á bók. Forvitnileg lesning fyrir alla sem hafa áhuga á Jóhanni Magnúsi og verkum hans eða á sögu Íslendinga í Vesturheimi.

590
kr.
Eiríkur Hansson: I. Bernskan

Eiríkur Hansson: I. Bernskan

590

kr.

Frábær bók til samlestrar á miðstigi.  Sagan segir frá drengnum Eiríki Hanssyni frá því hann fæðist á Íslandi og flyst sjö ára gamall til Vesturheims og baráttu hans við að fóta sig í nýju landi. Bókin er innbundin og eiguleg.

Á vefnum er hægt að

  • hlusta á hana upplesna,
  • nálgast gott vinnuhefti (með lausnum) og
  • þá er einnig hægt að hlaða henni niður sem rafbók. 

Vinnuheftið samanstendur af fjölda fjölvalsspurninga og henta spurningarnar til þjálfunar á lesskilningi. Þið getið séð allt efnið sem fylgir bókinni með því að smella hér.

2990
kr.
Ekki meir

Ekki meir

2990

kr.

Bókin Ekki meir eftir Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing er hugsuð sem verkfæri í viðleitni til að sporna við einelti. Í bókinni er fjallað um hinar mörgu tegundir forvarna og tengsl þeirra við uppbyggingu jákvæðs staðarbrags í skóla-, íþrótta- og æskulýðsumhverfinu. Meginhluti bókarinnar fjallar um úrvinnslu eineltismála, viðbrögð og viðbragðsáætlun í eineltismálum. 

Mikil áhersla er lögð á að bókin hafi almennt notagildi fyrir fullorðna og börn, gerendur og þolendur. 

Höfundur bókarinnar, Kolbrún Baldursdóttir, byggir efnið á áratuga reynslu sem sálfræðingur. Hún hefur komið að málefnum barna og unglinga með fjölbreyttum hætti svo sem með kennslu, ráðgjöf og sem meðferðaraðili. 

990
kr.
Enskar krossgátur og aðrar orðaforðaæfingar

Enskar krossgátur og aðrar orðaforðaæfingar

990

kr.

Krossgátur eru sívinsæl dægradvöl og tilvalið tól til að þjálfa okkur á margvíslegan máta. Þær nýtast nefnilega vel til að læra alls kyns staðreyndir, festa ýmis atriði í minni, þjálfa réttritun og efla rökhugsun.

Í þessari kennslubók bjóðum við upp á þematengdar krossgátur sem auk þess að hnykkja á almennum orðaforða þjálfa einnig nemendur í enskri stafsetningu. Þá fylgja með annars konar orðaforðaæfingar. Alls er bókin 56 blaðsíður.

Bókin er þannig uppbyggð að á hverri opnu er krossgáta sem tekur fyrir orð sem tengjast ákveðnu þema eða málfræðiatriði og á móti er listi yfir sömu orð þar sem á að tengja þau við skýringu. Þannig hafa nemendur orðin hjá sér til glöggvunar. 

Bókin hentar vel fyrir 5.-10. bekk.

990
kr.
Hlývindi

Hlývindi

990

kr.

Bókin Hlývindi hefur að geyma ljóð og laust mál eftir Stephan G. Stephansson. Baldur Hafstað, íslenskuprófessor við Menntavísindasvið HÍ, hefur haft veg og vanda af gerð þessarar bókar og hefur jafnframt skrifað frábærar skýringar með efninu til að auðvelda okkur að nálgast verk Stephans á skilmerkilegan hátt.

Stephan G. er og verður einn mesti hugsuður sem þjóð okkar hefur alið. Hann var maður margra heima; ólst upp í afdölum norðanlands og fluttist til vesturheims í leit að betra lífi sér og sínum til handa. Hann var óhræddur við að segja skoðun sína á málefnum líðandi stundar og gerði það oftast þannig að skoðanirnar lifðu málefnin. Eiga orð hans jafn mikið erindi til okkar í dag eins og þau áttu þá. Það hefur lengi skort að hægt væri að nálgast prósatexta Stephans í hentugri útgáfu, en nú höfum við ráðið bót á því. Hverju ljóði og lausamálstexta fylgir inngangur þar sem Baldur fjallar um viðkomandi texta og gerir það á svo ljósan hátt að textinn hreinlega lifnar við.

Hugmyndir Stephans G. eiga mikið erindi til námsmanna og því hefur Baldur útbúið vinnuhefti (kennsluleiðbeiningar) með völdum köflum í bókinni, ætlað efstu bekkjum grunnskólans og framhaldsskólanemum. Getur því verið hentugt fyrir skóla að verða sér úti um bekkjarsett af bókinni til að geta nýtt sér vinnubókina. Vinnubókina má nálgast hér.

490
kr.
Hvað kosta ég?

Hvað kosta ég?

490

kr.

Bókin Hvað kosta ég? kynnir fjármálahugtök fyrir ungu fólki með stuttum og hnitmiðuðum texta. Hún inniheldur fjölda verkefna og umræðuefna sem vekja áhuga unglinga á eigin fjármálum og fjármálakerfinu.Efni bókarinnar hentar mjög vel í lífsleikni oger tilvalin til fjármálafræðslu í grunnskólum.Frábært fjármálakennsluefni sem beðið hefur verið eftir.Meðal annars er rætt um fjárræði, vexti, sparnað, samskipti við banka, FIT greiðslur, SMS lán, verðmæti, launaseðla og skatta.Á vefnumwww.fjarmalaskolinn.iser að finna mikið ítarefni og myndbönd sem styðja við kennsluna. Þar má einnigskoða fyrstu síður bókarinnarí gagnvirkri flettibók.

390
kr.
Kasper og Jesper

Kasper og Jesper

390

kr.

Bókin um Kasper og Jesper er fjórða léttlestrarbókin okkar eftir Berglindi Guðmundsdóttur en efnið frá henni á Skólavefnum hefur lengi verið með því vinsælasta á vefnum hjá okkur. Þessi bók er í anda Sóma og Sæla sjóræningja og er mikið lagt upp úr því að bókin sé falleg á að líta og að hún höfði til hinna yngri lesenda.Í þessari bók er ákveðiðsamhljóðasamband æft ítextanum en það er sp. Bókin telur 36 blaðsíður og hefur að geyma létt og sniðug verkefni.Ef bókin er keypt í pakka ásamt með Sæla sjóræningja, Sóma sjóræningja og Stínu og Ástu, kostar hún einungis 200 krónur, en pakkinn allur kostar einungis 800 krónur.

990
kr.
LITABÆKURNAR - 1. Gulbókin

LITABÆKURNAR - 1. Gulbókin

990

kr.

Textar upp að 100 orðum.LITABÆKURNAR er ný ritröð af lestrarbókum sem sniðnar eru þörfum þeirra sem vilja þjálfa sig í lestri með sérstaka áherslu á lesskilning. Bækurnar eru fáanlegar í ólíkum sniðum sem henta öllum tækjum og tólum og auk þess er hægt að prenta þær út.

1100
kr.
LITABÆKURNAR - 2. Rauðbókin

LITABÆKURNAR - 2. Rauðbókin

1100

kr.

Textar upp að 200 orðum.LITABÆKURNAR er ný ritröð af lestrarbókum sem sniðnar eru þörfum þeirra sem vilja þjálfa sig í lestri með sérstaka áherslu á lesskilning. Bækurnar eru fáanlegar í ólíkum sniðum sem henta öllum tækjum og tólum og auk þess er hægt að prenta þær út.

1100
kr.
LITABÆKURNAR - 3. Grænbókin

LITABÆKURNAR - 3. Grænbókin

1100

kr.

Textar upp að 300 orðum.LITABÆKURNAR er ný ritröð af lestrarbókum sem sniðnar eru þörfum þeirra sem vilja þjálfa sig í lestri með sérstaka áherslu á lesskilning. Bækurnar eru fáanlegar í ólíkum sniðum sem henta öllum tækjum og tólum og auk þess er hægt að prenta þær út.

1490
kr.
LITABÆKURNAR - 4. Blábókin

LITABÆKURNAR - 4. Blábókin

1490

kr.

Textar upp að 400 orðum.LITABÆKURNAR er ný ritröð af lestrarbókum sem sniðnar eru þörfum þeirra sem vilja þjálfa sig í lestri með sérstaka áherslu á lesskilning. Bækurnar eru fáanlegar í ólíkum sniðum sem henta öllum tækjum og tólum og auk þess er hægt að prenta þær út.

1490
kr.
LITABÆKURNAR - 5. Grábókin

LITABÆKURNAR - 5. Grábókin

1490

kr.

Textar upp að 500 orðum.LITABÆKURNAR er ný ritröð af lestrarbókum sem sniðnar eru þörfum þeirra sem vilja þjálfa sig í lestri með sérstaka áherslu á lesskilning. Bækurnar eru fáanlegar í ólíkum sniðum sem henta öllum tækjum og tólum og auk þess er hægt að prenta þær út.

1490
kr.
LITABÆKURNAR - 6. Svartbókin

LITABÆKURNAR - 6. Svartbókin

1490

kr.

Textar upp að 600 orðum.LITABÆKURNAR er ný ritröð af lestrarbókum sem sniðnar eru þörfum þeirra sem vilja þjálfa sig í lestri með sérstaka áherslu á lesskilning. Bækurnar eru fáanlegar í ólíkum sniðum sem henta öllum tækjum og tólum og auk þess er hægt að prenta þær út.

1490
kr.
LITABÆKURNAR - 7. Bleikbókin

LITABÆKURNAR - 7. Bleikbókin

1490

kr.

Textar - Pisatengdar æfingar.LITABÆKURNAR er ný ritröð af lestrarbókum sem sniðnar eru þörfum þeirra sem vilja þjálfa sig í lestri með sérstaka áherslu á lesskilning. Bækurnar eru fáanlegar í ólíkum sniðum sem henta öllum tækjum og tólum og auk þess er hægt að prenta þær út.

490
kr.
Labbi pabbakútur

Labbi pabbakútur

490

kr.

Sagan af Labba pabbakúteftir Vilborgu Dagbjartsdóttur kom fyrst út árið 1971 hjá Ísafoldarprentsmiðju.Var hún þriðja barnabók Vilborgar, en áður hafði hún sent frá sér sögurnar Alli Nalli og tunglið (1959) og Sögur af Alla Nalla (1965). Bókin er með stóru og skýru letri og í alla staði mjög vönduð.Bókinni fylgir vönduð og skemmtileg vinnubók sem unnin er með hliðsjón af Aðalnámskrá grunnskóla fyrir 2. og 3. bekk.Hægt er að nálgast vinnbókina hér.

3790
kr.
Lesum lipurt - Stafaspjöld - Tóti trúður

Lesum lipurt - Stafaspjöld - Tóti trúður

3790

kr.

Bækurnar eru ætlaðar byrjendum í lestri. Lögð er áhersla á að æfa vel hvern staf, hvert hljóð og tengingu milli hljóða. Lestextinn er einfaldur, sérstaklega í byrjun, þannig að börnin finni fljótlega fyrir getu sinni. Markmiðið er einnig að þau hafi ánægju af lestrinum. Í bókunum eru ýmis önnur verkefni sem tengjast nefnihraða, hljóðgreiningu, rökhugsun, athygli o. fl. Með bókunum er hægt að kaupa sérstök stafaspjöld, sem einkum eru ætluð kennurum og öðrum við stafainnlögn og kennslu. Á hverju spjaldi er mynd og stafur og romsa til að þylja um stafinn. Einnig eru ýmsar tillögur að heimspekilegum umræðuefnum sem nýtast vel við að auka orðaforða og efla málskilning.

3490
kr.
Lesum lipurt fyrir Tóta trúð (2 bækur)

Lesum lipurt fyrir Tóta trúð (2 bækur)

3490

kr.

Bækurnar eru ætlaðar byrjendum í lestri. Lögð er áhersla á að æfa vel hvern staf, hvert hljóð og tengingu milli hljóða. Lestextinn er einfaldur, sérstaklega í byrjun, þannig að börnin finni fljótlega fyrir getu sinni. Markmiðið er einnig að þau hafi ánægju af lestrinum. Í bókunum eru ýmis önnur verkefni sem tengjast nefnihraða, hljóðgreiningu, rökhugsun, athygli o. fl.

2980
kr.
Lesum lipurt: Léttlestrarbækur

Lesum lipurt: Léttlestrarbækur

2980

kr.

Skólavefurinnhefur nú tekið í sölu hinar frábæru léttlestrarbækur Lesum lipurt eftir Sigríði Ólafsdóttur, sérkennara. Hún hefur í áratugi starfað við lestrarkennslu seinfærra barna; sérkennslu, talkennslu og kennslu heyrnardaufraauk almennrar kennslu.Bækurnar eru átta talsins, fjölnota,og eru ætlaðar öllum byrjendum í lestri. Þær henta einnig sérlega vel nemendum sem fara hægt af stað við lestrarnám eða eru áhugalitlir um lestur.Textinn íbókunum er mjög léttur og einfaldur íbyrjun og mikiðer um endurtekningar sem gerir þaðaðverkum aðnemandinn finnur fyrir getu sinni og sjálfstraust eykst. Bækurnar þyngjast svo stig af stigi og er fariðígegnum allar þrjár grunnlestraraðferðirnar, þ.e.a.s. fyrst orðaðferðina, síðan hljóðaðferðina og loks stöfunaraðferðina.Bækurnar eru seldar átta saman í pakka.

4290
kr.
Lesum lipurt: Sérhljóðabækur

Lesum lipurt: Sérhljóðabækur

4290

kr.

Sérhljóðabækurnar eru léttlestrarbækur íbókaflokknum Lesum lipurteftir Sigríði Ólafsdóttur sérkennara.Bækurnar eruátta talsins og mælt er með því að þær séu lesnar í númeraröð.Markmiðið með bókunum er að þjálfa lestur á orðum sem innihalda ákveðin sérhljóð eða tvíhljóð og er lestextinnspunninn utan um þau.Textinn er einfaldur og mikið um endurtekningar, þannig að nemandinn finnur fyrir getu sinni og sjálfstraust hans eykst.Bækurnar eru seldar átta saman í pakka.

2690
kr.
Lesum lipurt: Ævintýri fyrir börn

Lesum lipurt: Ævintýri fyrir börn

2690

kr.

Í pakkanum eru þrjár áhugaverðar lestrarbækur. Bækurnar sem eru hugsaðar frá 2. bekk og áfram eru skemmtilega myndskreyttar heita: Skotta litla humlan mín, Tréð sem vildi læra að lesa og Oddur ánamaðkur.Margir þekkja eflaust fyrri bækur Sigríðar, Léttlestrarbækurnar og Sérhljóðabækurnar sem notið hafa gríðarlegra vinsælda meðal kennara og nemenda. Eigum við von á að þessar bækur verði jafn vinsælar.Bækurnar eru einungis seldar saman í pakka og kostar pakkinn hjá okkur einungis 3.800 krónur. Hvetjum alla til að kynna sér vel þetta vandaða efni frá Sigríði.

2693
kr.
Marvel: HULK

Marvel: HULK

2693

kr.

Nú býður Skólavefurinn ykkur upp á nýjar bækur úr smiðju þeirra hjá útgáfufyrirtækinu MARVEL á íslensku. Eru þessar bækur gríðarlega vinsælar hjá ungu fólki í dag og ættu að ýta undir lestur hjá mörgum sem hingað til hafa kannski ekki sýnt lestri mikinn áhuga.  Er þetta nýr og spennandi kostur sem við hvetjum alla til að skoða.

Það er mikilvægt að nemendur geti nálgast efni af þessu tagi á vandaðri íslensku og hvetjum við því bókasöfn skóla til að bjóða nemendum upp á þennan áhugaverða valkost. Ef einhver skóli vill fá bekkjarsett er hægt að semja um enn betra verð.

3278
kr.
Marvel: X-MEN

Morgunn lífsins

Morgunn lífsins

490

kr.

Nafn Kristmanns Guðmundssonar (1901-1983) var ,,á hvers manns vörum'' í Noregi í kringum 1930 þar sem fyrstu skáldsögur hans birtust. Þær voru þýddar á yfir þrjátíu tungumál á 4. áratug síðustu aldar og víða gefnar út aftur og aftur.Nú gefst nýrri kynslóð tækifæri til að lesa eitt af bestu verkum Kristmanns,Morgun lífsins, sem á sér stað við hafnlausa strönd í sunnlensku samfélagi á seinni hluta 19. aldar. Á yfirborðinu virðist mannlífið kyrrstætt og staðnað en undiraldan er ógnvænleg.Frásagnargleði og innsæi Kristmanns í mannlegan vanmátt og breyskleika hrífur lesandann með sér.

2200
kr.
Orð og setningar (bók 1, 2 og 3)

Orð og setningar (bók 1, 2 og 3)

2200

kr.

790
kr.
Orð og setningar 1

Orð og setningar 1

790

kr.

Orð og setningar  – Lestrarvinnubækur eru heildstæðar lestrarvinnubækur fyrir yngri bekkjardeildir grunnskólans.  Kemur þær í beinu framhaldi af bókunum Stafir og orð þar sem áhersla var á stafainnlögn og stuðst við námsefni í lestri úr smiðju Skólavefsins fyrir ynɡri bekkjardeildir ɡrunnskólans. Grunnmarkmiðið þar er að kenna stafina, styðja við grunnlestur oɡ æfa lesskilninɡ.

Í þessum bókum er lestur og lesskilningur í öndvegi um leið og  farið er yfir ýmis atriði sem falla undir málfræði (kynning), hlustun, ritun og almenna  málnotkun.

790
kr.
Orð og setningar 2

Orð og setningar 3

Rejsen til Udgårdsloke (lesbók)

Rejsen til Udgårdsloke (lesbók)

1490

kr.

Í dönsku bjóðum við upp á skemmtilega sögu byggða á norrænu goðafræðinni, Rejsen til Udgårdsloke eftir Vilhjálm Gíslason. Sagan fjallar um för Þórs til Útgarðaloka og kemur úr Gylfaginningu. Sagan er ætluð nemendum í 8.-10. bekk. Hún er skemmtileg og glæsilega myndskreytt og vel til þess fallin að fanga áhuga nemenda. Lesbókin er fjölnota.Vinnubókin er seld sér, en hún inniheldur fjölbreytt verkefni eins og lesskilningsspurningar, andheiti, samheiti, krossgátur og eyðufyllingar. Einnig er á Skólavefnum að finna glæsilega vefútgáfu af sögunni með upplestri og gagnvirkum æfingum.

590
kr.
Rejsen til Udgårdsloke (vinnubók)

Rejsen til Udgårdsloke (vinnubók)

590

kr.

Í dönsku bjóðum við upp á skemmtilega sögu byggða á norrænu goðafræðinni, Rejsen til Udgårdsloke eftir Vilhjálm Gíslason. Sagan fjallar um för Þórs til Útgarðaloka og kemur úr Gylfaginningu. Sagan er ætluð nemendum í 8.-10. bekk. Hún er skemmtileg og glæsilega myndskreytt og vel til þess fallin að fanga áhuga nemenda. Vinnubókin inniheldur fjölbreytt verkefni eins og lesskilningsspurningar, andheiti, samheiti, krossgátur og eyðufyllingar.Lesbókin er seld sér.Einnig er á Skólavefnum að finna glæsilega vefútgáfu af sögunni með upplestri og gagnvirkum æfingum.

390
kr.
Samtöl Matthíasar Johannessen

Samtöl Matthíasar Johannessen

390

kr.

Bókin hefur að geyma yfir tuttugu samtöl sem er frábært innlegg í samfélagsumræðuna, auk þess að vera afar skemmtileg. Þarna er til að mynda viðtal við konu sem seld var á uppboði o.fl. sem ungt fólk í dag hefði gott af því að kynnast.Við höfum útbúið verkefni með fimm völdum samtölum til að auðvelda kennurum að leggja þetta frábæra efni fyrir nemendur sína. Það væri þá nóg fyrir skóla að verða sér úti um eitt bekkjarsett af bókinni eða fáein eintök af bókinni, sem gæti þá gengið á milli bekkja. Já hér er á ferðinni efni sem nemendur hefðu bæði gagn og gaman af að kynna sér. Raunverulegar sögur af raunverulegu fólki í listrænum búningi Matthíasar Johannessens.Vinnubókina má nálgast hér.Verð á meðan birgðir endast:

990
kr.
Snillingaþrautir (Stóra snillingabókin)

Snillingaþrautir (Stóra snillingabókin)

990

kr.

Stóra snillingabókin hentar vel sem almenn þrautabók fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Bókin kemur í fallegri útgáfu með kili.Getur verið hentugt að brjóta upp t.a.m. stærðfræðitíma með slíkum þrautum, sem auk þess að vera skemmtilegar bjóða upp á öðruvísi þrautir en er að finna í hefðbundnum kennslubókum og gefa kost á annars konar nálgun.Þá eru þrautirnar í bókunum misþungar þannig að allir geta fundið þrautir við hæfi.Út hafa komið tvær bækur í þessum flokki, Snillingabók 1 og 2, og við höfum hér sameinað valdar þrautir úr þeim í eina stóra bók. Bækurnar eru tilvaldar sem hvers kyns afþreyingar- eða uppfyllingarefni.

790
kr.
Stafir og orð 1

Stafir og orð 1

790

kr.

Stafir og orð er nýtt efni úr smiðju okkar á Skólavefnum og samanstendur af fjórum kennslubókum sem við köllum lestrarvinnubækur og hafa að geyma stafainnlagnir og grunnæfingar í lestri og skrift Þar eru allir stafir stafrófsins kynntir og unnið með þá á skipulegan og markvissan hátt.Efnið telur í allt yfir 200 blaðsíður og eru átta stafir teknir fyrir í hverri bók nema þeirri síðustu en þar eru þeir tólf. Má nota þær bæði sem viðbótarefni með öðru námsefni eða sem lykilefni.Hér er hægt að skoða bækurnar í flettibókaformi.Hver bók kostar hjá okkur 790 kr. Allt settið er á 3000 kr.

790
kr.
Stafir og orð 2

Stafir og orð 3

Stafir og orð 4

1499
kr.
Stærðfræðiþrautir frá Óðinsauga

Stærðfræðiþrautir frá Óðinsauga

1499

kr.

Bókin Stærðfræðiþrautir er úr smiðju þeirra hjá Óðinsauga. Hún hefur að geyma skemmtilegar þrautir til að dýpka skilning barna í stærðfræði.Bókin er fallega myndskreytt sem hjálpar nemendum að skilja þrautirnar betur.Bókin kostar 1499 krónur.Ef keypt er bekkjarsett, þ.e. tíu eintök eða fleiri fæst bókin á 999 krónur.

390
kr.
Stína og Ásta

Stína og Ásta

390

kr.

Bókin um Stínu og Ástu er skemmtileg léttlestrarbók eftir Berglindi Guðmundsdóttur. Hún er af sama meiði og bækurnar um sjóræningjana Sóma og Sæla sem áður hafa komið út hjá Skólavefnum. Í bókinni um Stínu og Ástu er unnið með samhljóðasambandið st.Bókin telur 36 blaðsíður og afar fallega myndskreytt. Eins og í öðrum léttlestrarbókum okkar er að finna einföld og skemmtileg verkefni í bókinni sem nemendur geta unnið í bókina sjálfa eða í stílabók.Ef bókin er keypt í pakka ásamt með Sóma sjóræningja, Sæla sjóræningja og Kasper og Jesper, kostar hún einungis 200 krónur, en pakkinn allur kostar einungis 800 krónur.

390
kr.
Sæli sjóræningi

Sæli sjóræningi

390

kr.

Sæli sjóræningi er önnur bókin í röð léttlestrarbóka eftir Berglindi Guðmundsdóttur semSkólavefurinn gefur út. Bækurnar eru mjög vandaðar ogfrábær viðbót í flóru bóka fyrir yngstu nemendurna. Sæli sjóræningi er fallega myndskreytt saga sem er í senn skemmtileg og þroskandi því í bókinni er fjöldi þrauta og leikja.Ef bókin er keypt í pakka ásamt með Sóma sjóræningja, og Kasper og Jesper og Stína og Ásta kostar hún einungis 200 krónur, en pakkinn allur kostar einungis 800 krónur.

390
kr.
Sómi sjóræningi

Sómi sjóræningi

390

kr.

Sómi sjóræningi er fyrsta bókin í bókaröð eftir Berglindi Guðmundsdóttur, en hún er einnig höfundur hinna vinsælu Léttlestrarbókasem nálgast má á Skólavefnum.Bækurnar í þessari bókaröð eru öðruvísi en hefðbundnar slíkar bækur eru, því auk lestextanna innihalda þær laufléttar og skemmtilegar þrautir.Ef bókin er keypt í pakka ásamt með Sæla sjóræningja, Kasper og Jesper og Stínu og Ástu, kostar hún einungis 200 krónur, en pakkinn allur kostar einungis 800 krónur.

490
kr.
Sögur af Alla Nalla

Sögur af Alla Nalla

490

kr.

BókinSögur af Alla Nallaeftir Vilborgu Dagbjartsdóttur kom fyrst út árið 1965 hjá Ísafoldarprentsmiðju.Var hún önnur barnabók Vilborgar, en áður hafði hún sent frá sér sögunaAlli Nalli og tungliðárið 1959.Bókin er með stóru og skýru letri og í alla staði mjög vönduð.Bókinni fylgir vönduð og skemmtileg vinnubók sem unnin er með hliðsjón af Aðalnámskrá grunnskóla fyrir 2. og 3. bekk. Hægt er að nálgast vinnbókina hér.

1118
kr.
Tungufoss 1 (lesbók)

Tungufoss 1 (lesbók)

1118

kr.

Tungufoss er vandað heildstætt námsefni í íslensku fyrir 8.-10. bekk. Við höfum valið að kalla lesbækurnar einfaldlega Tungufoss 1, Tungufoss 2 og Tungufoss 3, og er einlesbókætluð hverjum árgangi.Höfundar efnisins eru Baldur Hafstað og Ingólfur B. Kristjánsson.Hægt er að nálgast fjölbreytt stuðningsefni á vef með bókunum hér.Tilboðsverð:

1118
kr.
Tungufoss 2 (lesbók)

Tungufoss 2 (lesbók)

1118

kr.

Tungufosser vandað heildstætt námsefni í íslensku fyrir 8.-10. bekk. Við höfum valið að kalla lesbækurnar einfaldlegaTungufoss 1,Tungufoss 2ogTungufoss 3, og er einlesbókætluð hverjum árgangi.Höfundar efnisins eru Baldur Hafstað og Ingólfur B. Kristjánsson.Hægt er að nálgast fjölbreytt stuðningsefni á vef með bókunum hér.Tilboðsverð:

1118
kr.
Tungufoss 3 (lesbók)

1790
kr.
Tungutak 1 (vinnubók)

Tungutak 1 (vinnubók)

1790

kr.

Hugsað fyrir 8. bekk og er samtals 167 bls. Hér er áhersla lögð á þjálfun í málfræði, stafsetningu og málnotkun. Tungutak er á lausum blöðum, götuðum fyrir möppur.Þar er farið yfir öll málfræði- og stafsetningaratriði sem þessum aldurshópum er ætlað að kunna skil á. Auk þess er í Tungutaki fjölbreytilegt efni tengt málfari, stíl, brag og ritun. Framsetningin er á margan hátt nýstárleg og hvetjandi.Hægt er að nálgast fjölbreytt stuðningsefni með bókunum hér.

1790
kr.
Tungutak 2 (vinnubók)

Tungutak 2 (vinnubók)

1790

kr.

Hugsað fyrir 9. bekk og er samtals 174 bls. Hér er áhersla lögð á þjálfun í málfræði, stafsetningu og málnotkun. Tungutak er á lausum blöðum, götuðum fyrir möppur. Þar er farið yfir öll málfræði- og stafsetningaratriði sem þessum aldurshópum er ætlað að kunna skil á. Auk þess er í Tungutaki fjölbreytilegt efni tengt málfari, stíl, brag og ritun. Framsetningin er á margan hátt nýstárleg og hvetjandi.Hægt er að nálgast fjölbreytt stuðningsefni með bókunum hér.

1790
kr.
Tungutak 3 (vinnubók)

Tungutak 3 (vinnubók)

1790

kr.

Hugsað fyrir 10. bekk og er samtals 180 bls. Hér er áhersla lögð á þjálfun í málfræði, stafsetningu og málnotkun. Tungutak er á lausum blöðum, götuðum fyrir möppur. Þar er farið yfir öll málfræði- og stafsetningaratriði sem þessum aldurshópum er ætlað að kunna skil á. Auk þess er í Tungutaki fjölbreytilegt efni tengt málfari, stíl, brag og ritun. Framsetningin er á margan hátt nýstárleg og hvetjandi.Hægt er að nálgast fjölbreytt stuðningsefni með bókunum hér.

990
kr.
Tölur og talning 1

Tölur og talning 1

990

kr.

Tölur og talning er vönduð bókaröðí stærðfræði fyrir þá allra yngstu (1. bekk). Um er að ræða bækur með skemmtilegum verkefnum sem hjálpa byrjendum að læra á og vinna með tölurnar. Efnið er að mestu byggt á bókinni Numbers and Counting – First Steps sem gefin var út hjá bókaforlaginu Domino Books og hefur verið notað víða með góðum árangri. Efnið í bókunum fjórum er afar myndrænt og þjálfar nemendur í að læra að skrifa, vinna með og leika sér með tölurnar1-10 á skemmtilegan og árangursríkan hátt. Bókin er 40 blaðsíður að lengd.

990
kr.
Tölur og talning 2

Tölur og talning 2

990

kr.

Tölur og talninger vönduð bókaröðí stærðfræði fyrir þá allra yngstu (1. bekk). Um er að ræða bækur með skemmtilegum verkefnum sem hjálpa byrjendum að læra á og vinna með tölurnar. Efnið er að mestu byggt á bókinniNumbers and Counting – First Stepssem gefin var út hjá bókaforlaginu Domino Books og hefur verið notað víða með góðum árangri. Efnið í bókunum fjórum er afar myndrænt og þjálfar nemendur í að læra að skrifa, vinna með og leika sér með tölurnar1-10 á skemmtilegan og árangursríkan hátt.Bókin er 40 blaðsíður að lengd.

990
kr.
Tölur og talning 3

Tölur og talning 4

Tölur og tengingar 1

Tölur og tengingar 1

990

kr.

Bókin Tölur og tengingar 1er ætluð 2. bekk og tekur við af bókaröðinni Tölur og Talning sem hefur verið afar vinsælhjákennurum.Hér er unnið með hærri gildi talna og kynntar til sögunnar flóknari reikniaðgerðir eins og deiling, margföldun og rúmfræði.

kr.
Vanda málið

Vanda málið

kr.

Vanda máliðsamanstendur af tveimur lesbókum og tveimur vinnubókum fyrir hvern árgang á miðstigi (5., 6. og 7. bekk). Samtals eru því bækurnar því 4 fyrir hvern árgang og 12 í allt. Bækurnar eru unnar út frá markmiðum Aðalnámskrár fyrir miðstigið og duga til alls íslenskunáms samkvæmt námskrá skólaárið á enda.Höfundar eru Baldur Hafstað, Ingólfur Kristjánsson, Þórður Helgason og Sigurður Konráðsson.Bókunum fylgir mikið aukaefni á vefnum: aukaverkefni (þyngri og léttari), upplestur, gagnvirkar æfingar, hugtakabankar, kennarabækur, lausnir, námsmat o.fl.

490
kr.
Ævintýraheimur H. C. Andersen

Ævintýraheimur H. C. Andersen

490

kr.

H. C. Andersen þekkja flestir. Sögur hans hafa fylgt börnum til fullorðinsára um langan aldur og munu gera um ókomna framtíð.Eru þær bæði skemmtilegar, þroskandi og kenna oft á tíðum góða siði og breytni.Í þessari kennslubók eru fjórar sögur úr smiðju Andersens og byggir textinn á þýðingum Steingríms Thorsteinssonar. Sögurnar sem um ræðir eru:Eldfærin, Prinsessan á bauninni, Tindátinn staðfastiog Ljóti andarunginn. Hverri sögu fylgja góð verkefnisem taka mið af markmiðum aðalnámskrár í íslensku fyrir 4.–6. bekk.Byggja verkefnin á efni sagnanna og þjálfa því lesskilning, en einnig eru æfingar í almennri málfræði, ritun, orðaforða o.m.fl.Tilboðsverð:

1099
kr.
Ég get lesið: Alí Baba

Ég get lesið: Alí Baba

1099

kr.

Við höfum tekið fjórar nýjar lestrarbækur frá útgáfufyrirtækinu Óðinsauga í umboðssölu. Þið getið pantað þær hjá okkur. Þetta eru fallega myndskreyttar bækur sem ættu að höfða til krakka.

Hver bók kostar 1099 krónur.

Ef keypt er bekkjarsett, þ.e. tíu eintök eða fleiri fæst bókin á 999 krónur.

1099
kr.
Ég get lesið: Galdrakarlinn í Oz

Ég get lesið: Galdrakarlinn í Oz

1099

kr.

Stigskiptar lestrarbækur frá Óðinsauga

Við höfum tekið fjórar nýjar lestrarbækur frá útgáfufyrirtækinu Óðinsauga í umboðssölu. Þið getið pantað þær hjá okkur. Þetta eru fallega myndskreyttar bækur sem ættu að höfða til krakka.

Hver bók kostar 1099 krónur.

Ef keypt er bekkjarsett, þ.e. tíu eintök eða fleiri fæst bókin á 999 krónur.

1099
kr.
Ég get lesið: Hérinn og skjaldbakan

Ég get lesið: Pétur Pan

Í bóli bjarnar

Í bóli bjarnar

590

kr.

Í bóli bjarnar er vönduðbók fyrir miðstig grunnskóla eftir Guðjón Ragnar Jónasson, þar sem höfundur samþættir heim nýrra Íslendinga og fornar íslenskar þjóðsögur og sagnir. Til að létta ungum lesendum lesturinn eru sjaldgæf orð útskýrð.Bókin fjallar um ungan dreng, Tómas, sem flutti til Íslands frá Póllandi og hefur búið hér í fjögur ár. Tilviljun leiðirtil þess að hann flytur til Grímseyjar og þá fyrst lendir Tómas í almennilegum ævintýrum.Bókinni fylgir heildstæð vinnubók í íslensku upp á 43 blaðsíður þar sem áhersla er lögð á að auka málfærni og málskilning nemenda auk þess að ýta undir hópavinnu og hópumræðu. Vinnubókina má nálgast hér.

499
kr.
Þjóðsögur

Þjóðsögur

499

kr.

Við á Skólavefnum kynnum með stolti þrjár kennslubækur um íslenskar þjóðsögur eftir Baldur Hafstað, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, sem hugsaðar eru fyrir efsta stig grunnskólans.Nefnast þær:„Baulaðu nú..." (8. bekkur)„Ég átti að verða prestskona" (9. bekkur)„Þá hló marbendill" (10. bekkur)Bækurnar eru að sjálfsögðu unnar í samræmi við þau markmið sem Aðalnámskrá grunnskóla kveður á um fyrir umrædda aldurshópa í íslensku en bekkjartalið er þó einungis leiðbeinandi.Bækurnar samanstanda af völdum þjóðsögum sem Baldur hefur valið af kostgæfni og með hliðsjón af viðkomandi aldurshópi.Hverri sögufylgir stutt umsögn þar sem farið er yfir sérkenni hennar og annað sem höfundur leggur áherslu á hverju sinni. Þá fylgja hverri sögu orðskýringar og greinagóð verkefni þar sem tekin eru fyrir eftirfarandi atriði: stílfræðileg atriði, umræður, munnlegur flutningur, efnisspurningaroghugleiðingar.Hér er á ferðinni bæði vandað og skemmtilegt námsefni sem kennarar mega ekki láta framhjá sér fara, enda nauðsynlegt að börn kynnist þessum sagnasjóði fortíðarinnar á aðgengilegan og fræðandi hátt.Höfum við lagt allt kapp á að gera þessar bækur vel úr garði bæði hvað varðar uppsetningu, myndskreytingar og allan almennan frágang.Stuðningssíða á vefnum okkar fylgir þessum bókum, þar sem m.a. er hægt að hlusta á sögurnar upplesnar.Tilboð: Hægt er að fá allar bækurnar í einum pakka fyrir 499krónur.

1590
kr.
Þjóðsögur: Ég átti að verða prestskona

Þjóðsögur: Ég átti að verða prestskona

1590

kr.

Við á Skólavefnum kynnum með stolti þrjár kennslubækur um íslenskar þjóðsögur eftir Baldur Hafstað, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, sem hugsaðar eru fyrir efsta stig grunnskólans.Nefnast þær:„Baulaðu nú..." (8. bekkur)„Ég átti að verða prestskona" (9. bekkur)„Þá hló marbendill" (10. bekkur)Bækurnar eru að sjálfsögðu unnar í samræmi við þau markmið sem Aðalnámskrá grunnskóla kveður á um fyrir umrædda aldurshópa í íslensku en bekkjartalið er þó einungis leiðbeinandi.Bækurnar samanstanda af völdum þjóðsögum sem Baldur hefur valið af kostgæfni og með hliðsjón af viðkomandi aldurshópi.Hverri sögufylgir stutt umsögn þar sem farið er yfir sérkenni hennar og annað sem höfundur leggur áherslu á hverju sinni. Þá fylgja hverri sögu orðskýringar og greinagóð verkefni þar sem tekin eru fyrir eftirfarandi atriði: stílfræðileg atriði, umræður, munnlegur flutningur, efnisspurningaroghugleiðingar.Hér er á ferðinni bæði vandað og skemmtilegt námsefni sem kennarar mega ekki láta framhjá sér fara, enda nauðsynlegt að börn kynnist þessum sagnasjóði fortíðarinnar á aðgengilegan og fræðandi hátt.Höfum við lagt allt kapp á að gera þessar bækur vel úr garði bæði hvað varðar uppsetningu, myndskreytingar og allan almennan frágang.Stuðningssíða á vefnum okkar fylgir þessum bókum, þar sem m.a. er hægt að hlusta á sögurnar upplesnar (sjá tengil).

1590
kr.
Þjóðsögur: Þá hló marbendill

Fara efst